Tap af rekstri Íbúðalánasjóðs nam rétt rúmum 6,9 milljörðum króna en eigið fé hans í árslok var tæpir 13,3 milljarðar króna samkvæmt efnahagsreikningi.

Þetta kemur fram í ársreikningi bankans sem birtur var í dag.

Þar kemur fram að eiginfjárhlutfall sjóðsins sem reiknað er samkvæmt ákvæðum í reglugerð um Íbúðalánasjóð er 4.6%. Hlutfallið er reiknað með sama hætti og eiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja. Langtímamarkmið sjóðsins er að hlutfallið sé yfir 5,0%.

Í árslok námu útlán 680,4 milljörðum króna og hækkuðu um tæplega 117,4 milljarða á árinu. Lántaka sjóðsins nam tæplega 708,5 milljörðum króna og hækkaði um 129,7 milljarða á árinu.

„Eins og fram kom í tilkynningu Íbúðalánasjóðs 17. nóvember 2008 fór hann ekki varhluta af þeirri kreppu á fjármagnsmörkuðum sem ríkti á síðustu mánuðum ársins 2008 og varð fyrir verulegum skakkaföllum vegna falls þriggja stærstu banka landsins,“ segir í ársskýrslu sjóðsins.

Þá kemur fram að sjóðurinn átti rúmlega 16,6 milljarða króna kröfu á viðskiptabankana vegna skuldabréfa og afleiðusamninga við fall þeirra í október. Sjóðurinn skuldaði þeim rúma 5,3 milljarða vegna afleiðusamninga og íbúðabréfa á sama tíma.

Í uppgjöri sjóðsins er gengið út frá að sjóðurinn eigi rétt á skuldajöfnun. Færð hefur verið niðurfærsla fyrir tæpa 7,9 milljarða króna til að mæta áætluðu tapi sjóðsins. Óvissa er um uppgjör afleiðusamninga og heimild sjóðsins til skuldajöfnunar. Tap sjóðsins getur því orðið annað þegar endanlegt uppgjör fer fram.