Alls bárust gild tilboð að nafnvirði 6,9 milljarðar króna í útboði íbúðabréfa Íbúðalánasjóðs sem tilkynnt var um í síðustu viku.

Samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar ákvað sjóðurinn hins vegar aðeins að taka tilboðum fyrir 3 milljarða króna.

Ákveðið var að taka tilboðum í eftirtalin íbúðabréf:

  • HFF150224 að nafnvirði 900 milljónir króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 4,61%
  • HFF150434 að nafnvirði 1,050 milljarðar króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 4,46%
  • HFF150644 að nafnvirði 1,050 milljarðar króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 4,30%