Vanskil lána Íbúðalánasjóðs voru rúmar 800 milljónir króna í maí. Hlutfall vanskila af heildarútlánum sjóðsins er nú 0,14% og er það aukning frá byrjun árs, en 1. janúar s.l. var hlutfallið 0,10%.

Þetta kemur fram á vef Íbúðalánasjóðs í dag.

Þar kemur fram að undirliggjandi lán þeirra vanskila sem um ræðir eru ekki skilgreind sem vanskil, heldur aðeins þeir gjalddagar sem eru ógreiddir, enda eru lán í vanskilum ekki gjaldfelld skv. reglum.

Alls námu heildarútlán sjóðsins rúmlega 2,5 milljörðum króna í maí. Þar af voru rúmir 1,8 milljarðar vegna almennra lána og rúmar 700 milljónir vegna leiguíbúðalána.

Heildarútlán sjóðsins drógust saman um tæplega 11% frá fyrra mánuði. Heildarútlán á fyrstu fimm mánuðum ársins nema tæpum 14,8 milljörðum, sem eru um 26% minni útlán en á sama tímabili 2008.

Heildarvelta íbúðabréfa í maí nam tæplega 64,3 milljörðum, sem er 46% meiri velta en í fyrri mánuði. Heildarvelta bréfanna nemur 332,5 milljörðum það sem af er árinu 2009.