Yfirtaka Fjármálaeftirlitsins á Straumi í gær hefur ekki áhrif á fjárhagslega stöðu Íbúðalánasjóðs.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íbúðalánasjóð en þar kemur fram að laust fé sjóðsins hefur einvörðungu verið ávaxtað á innlendum innlánsreikningum og með ríkisverðbréfum frá hruni bankanna í október síðastliðnum.

Þá kemur fram að samkvæmt yfirlýsingu ríkisstjórnar Íslands frá þeim tíma, eru innstæður í íslenskum bankastofnunum tryggðar að fullu.

„Íbúðalánasjóði er, samkvæmt útgefinni áhættu- og fjárstýringarstefnu sjóðsins, skylt að hafa yfir að ráða lausu fé sem nemur að lágmarki áætluðum nettó útlánum í þrjá mánuði og afborgunum af lánum sjóðsins sex mánuði fram í tímann,“ segir í tilkynningu sjóðsins en fram kemur að þetta fé nemur nú alls um fjörutíu milljörðum króna.

Þá kemur fram að þetta lausafé ávaxtar Íbúðalánasjóður á innlánsreikningum hjá fjármálastofnunum, með ríkisverðbréfum eða í Seðlabanka Íslands. Hluti þessa fjár hefur verið ávaxtað í innlánum hjá Straumi.

„Með góðri lausafjárstöðu Íbúðalánasjóðs er tryggt að hann geti veitt lán til íbúðarkaupenda og mætt afborgunum af skuldum sínum í ákveðinn tíma án þess að þurfa að sækja nýtt lánsfé út á markaðinn,“ segir í tilkynningu sjóðsins.