Útlán bankanna til íbúðakaupa í september námu tæpum 3,2 milljörðum króna, sem er svipað og síðastliðna tvo mánuði, segir greiningardeild Landsbankans.

Þetta mikill samdráttur frá því í sama mánuði á síðasta ári, þegar íbúðalán bankanna námu 14,9 milljörðum króna. Heildarútlán til íbúðakaupa hafa dregist töluvert saman á milli ára og er því ekki um mikinn hlutfallslegan samdrátt að ræða, segir greiningardeildin.

Alls voru afgreidd 309 ný íbúðalán hjá bönkunum í september og er það sjöundi mánuðurinn í röð sem nýjum lánum fækkar milli mánaða. Þeim hefur fækkað mikið frá því að mest var í október og nóvember 2004 en þá voru veitt um 3000 ný íbúðalán í mánuði.

Fækkun útlána til íbúðakaupa er skýrt merki um minni umsvif á fasteignamarkaði. Fjöldi kaupsamninga á viku hefur einnig dregist verulega saman og heldur hefur dregið úr hækkunum íbúðaverðs undanfarna mánuði. Í nýútgefinni Hagspá fjallar Greiningardeild um horfur á fasteignamarkaði en þar er gert ráð fyrir að á milli áranna 2006 og 2007 verði um 2-3% lækkun á fasteignaverði.