Í gær var skrifað undir samninga hjá Íbúðalánasjóði í tengslum við útgáfu Íbúðabréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði.

Markmiðið með samningnum er að styrkja aðgang Íbúðalánasjóðs að lánsfé og efla verðmyndun á eftirmarkaði, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Frá 1. júlí  2008 hafa sex fjármálastofnanir heimild til að kalla sig „Aðalmiðlara með Íbúðabréf."

Þær eru: Glitnir banki [ GLB ], Kaupþing banki [ KAUP ], Landsbanki Íslands [ LAIS ], MP Fjárfestingarbanki, Saga Capital Fjárfestingarbanki og  Straumur - Burðarás [ STRB ].

Helstu atriði samningsins eru þessi samkvæmt tilkynningunni:

  • Aðalmiðlarar/Viðskiptavaki hafa einir aðgang að útboðum Íbúðalánasjóðs.
  • Aðalmiðlarar/Viðskiptavakar hafa einir aðgang að verðbréfalánum sem Íbúðalánasjóður veitir.
  • Aðalmiðlari/Viðskiptavaki skuldbindur sig til að setja fram markaðsmyndandi tilboð í útboðum Íbúðabréfa fyrir a.m.k. 2.000 milljónir króna.
  • Aðalmiðlari/viðskiptavaki er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir alla markflokka Íbúðabréfa og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 100 milljónir króna að nafnvirði í hvern flokk Íbúðabréfa í  Kauphöllinni á Íslandi.
  • Aðalmiðlari/viðskiptavaki skuldbindur sig til þess að verðmunur kaup- og sölutilboða hans haldist innan tiltekinna marka sem nánar eru skilgreind í samningunum.
  • Aðalmiðlara/viðskiptavaka er skylt að endurnýja tilboð sín innan 10 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir 1.000 m.kr. að nafnvirði í tilteknum flokki er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða.
  • Samningurinn gildir frá 1. júlí 2008 til 30. júní 2009. Þóknun til allra aðalmiðlara/viðskiptavaka íbúðabréfa á samningstímanum verður 50 milljónir króna fyrir viðskiptavakt á eftirmarkaði og 0,15% þóknun í útboðum Íbúðabréfa.