Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 346,7 stig í apríl og lækkaði um 1,7% frá fyrra mánuði.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun á vísitölu íbúðarverðs síðustu þriggja ára, eða frá því í apríl 2005.

Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 3%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún lækkað um 3% en hækkun síðastliðna 12 mánuði var 7% samkvæmt tölum frá Fasteignamati Ríkisins.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.