Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 351 stig í júlí og hækkar um 0,8% frá fyrra mánuði.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun á vísitölu íbúðarverðs síðustu þriggja ára, eða frá því í júlí 2005.

Þar sést að íbúðarverð hefur lækkað jafnt og þétt frá áramótum fyrir utan maí mánuð þar sem vísitalan hækkaði 0,5% og er þetta því annar mánuðurinn á árinu sem vísitalan hækkar.

Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,2%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún lækkað um 1,8% en hækkun síðastliðna 12 mánuði var 2,6% samkvæmt tölum frá Fasteignamati Ríkisins.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.