Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 1,5% í nóvember frá fyrri mánuði, samkvæmt frétt Fasteignamats ríkisins . Vísitalan var 351,9 stig. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði hún um 2,1%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún hækkað um 4,8% og hækkun síðastliðna 12 mánuði var 14,1%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu fyrir desember 2007 verður gefin út fimmtudaginn 10. janúar 2008.