Íbúðaverð lækkaði um 1,7% á höfuðborgarsvæðinu á milli júní og júlí, segir greiningardeild Glitnis.

?Mest verðlækkun var á sérbýli en það lækkaði í verði um 2,9% á milli mánaða. Fjölbýli lækkaði einnig í verði um 1,3% á milli mánaða. Ljóst er að verðlækkun á íbúðamarkaði dregur úr verðbólguþrýstingi í hagkerfinu og kemur sér þannig vel fyrir Seðlabankann sem og greiðslubyrði almennings," segir greiningardeildin.

Hún segir að mikinn þrýstingur sé á að íbúðaverði lækki um þessar mundir.

?Vaxtahækkun á íbúðalánum ásamt minna lánaframboði og almennt minnkandi kaupmætti neytenda vegna verðbólguskots draga úr eftirspurn á íbúðamarkaði á sama tíma og framboð er umtalsvert og vaxandi með fjölda nýbygginga. Tiltrú neytenda hefur einnig dregist saman eftir gengisfall krónunnar og neytendur eru því tregari til mikilla fjárfestinga en áður," segir greiningardeildin.

Bendir greiningardeildin á að velta hafi minnkað til muna á íbúðamarkaði undanfarnar vikur, sem bendi til að verðið sé of hátt.

?Hluta skýringarinnar er þó líklega að finna í sumarleyfum og er líklegt að veltan aukist eitthvað með haustinu. Frekari verðlækkun virðist engu að síður þurfa til að færa saman framboð og eftirspurn. Við reiknum með því að íbúðaverð muni lækka um 5 til 10% á næstu 12 til 24 mánuðum," segir greiningardeildin.