Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 302,1 stig í janúar og lækkaði um 0,4% frá fyrra mánuði samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands.

Í janúar hækkaði vísitalan lítillega, eða um 0,4%, en nú er hún í sömu gildum og í desember sl. en þá hafði hún lækkað um 2,2% á milli mánaða sem þá var mesta lækkun á milli mánaða frá því í apríl á síðasta ári. Þá hefur vísitala íbúðaverðs ekki verið lægri frá því í febrúar 2006 eða í fjögur ár.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs síðastliðin þrjú ár. Þar sést hvernig vísitalan hefur lækkað síðasta árið en í mars og apríl á síðasta ári tók vísitalan nokkra dýfu niður á við. Þannig lækkaði vísitalan um 3,8% í mars sl. sem þá var mesta lækkun milli mánaða í yfir 15 ár eða frá því að byrjar var að reikna vísitölu íbúðaverðs.

Íbúðaverð hefur nú lækkað töluvert, eða um 15,5% á föstu verðlagi, frá því í janúar 2008 þegar vísitalan náði hámarki (357,4 stigum). Þangað til í júlí á síðasta ári hafði íbúðaverð þannig aðeins hækkað tvisvar milli mánaða á hálfu öðru ári.

Síðastliðna 3 mánuði hefur vísitala íbúðaverðs lækkað um 2,2%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún lækkað um 3,8% en lækkun síðastliðna 12 mánuði nemur 10%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.