Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 350,1 stig í ágúst 2008 og lækkaði um 0,3% frá fyrra mánuði samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins (FMR).

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs síðastliðin þrjú ár.

Íbúðaverð fór lækkandi í apríl og fram eftir vori en í júlí hækkaði það á ný og hefur hækkað um 0,5% síðastliðna þrjá mánuði.

Síðastliðna 6 mánuði hefur vísitalan lækkað um 1,1% en hækkun síðastliðna 12 mánuði var 1,6%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.