Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 348,3 stig í júní og lækkar um 0,1% frá fyrra mánuði.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun á vísitölu íbúðarverðs síðustu þriggja ára, eða frá því í júní 2005.

Þar sést að íbúðarverð hefur lækkað jafnt og þétt frá áramótum fyrir utan maí mánuð þar sem vísitalan hækkaði 0,5% en hefur eins og fyrr segir tekið að lækka á ný.

Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 1,2%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún lækkað um 1,1% og hækkun síðastliðna 12 mánuði var 3,2% samkvæmt tölum frá Fasteignamati Ríkisins.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.