Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 313,7 stig í ágúst og lækkaði um 0,1% frá fyrra mánuði samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands.

Þetta er annar mánuðurinn í röð þar sem vísitala íbúðaverðs lækkar lítillega en í júlí s.l. hækkaði vísitalan í fyrsta skipti í 12 mánuði, eða frá því í júlí í fyrra og þá hækkaði vísitalan aftur í ágúst.

Breytingin milli mánaða síðustu tvo mánuði er þó minnsta breyting, hvort sem um er að ræða hækkun eða lækkun, frá því í júní 2008.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs síðastliðin þrjú ár. Þar sést hvernig vísitalan hefur lækkað síðasta árið en í mars og apríl á þessu ári tók vísitalan nokkra dýfu niður á við. Þannig lækkaði vísitalan um 3,8% í mars sl. sem þá var mesta lækkun milli mánaða í yfir 15 ár eða frá því að byrjar var að reikna vísitölu íbúðaverðs.

Í raun hefur íbúðaverð lækkað töluvert, á föstu verðlagi, frá því í janúar 2008 þegar vísitalan náði hámarki (357,4 stigum) en síðan þá hefur íbúðaverð lækkað um 12%. Þangað til í júlí á þessu ári hafði íbúðaverð þannig aðeins hækkað tvisvar milli mánaða á hálfu öðru ári. Þá hefur íbúðaverð lækkað um 7% frá upphafi þessa árs.

Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitala íbúðaverðs um 0,6%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún lækkað um 0,2% en lækkun síðastliðna 12 mánuði nemur 10%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.