Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 348,7 stig í október 2008 og lækkaði um 0,2% frá fyrra mánuði samkvæmt  upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins (FMR).

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs síðastliðin þrjú ár.

Þar sést hvernig íbúðaverð hefur lækkað nánast samfellt en vísitala íbúðaverðs náði hámarki fyrir ári síðan, í október 2007, þegar hún mældist 357,3 stig.

Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 0,7%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún hækkað um 0,6% og lækkun síðastliðna 12 mánuði var 2,4%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.