Óhætt er að segja að íbúðaverð hafi tekið kipp upp á við á höfuðborgarsvæðinu í maí en vísitala íbúðaverðs mældist þá 308,9 stig og hækkaði um tæp 2% frá fyrri mánuði samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands.

Hér er um að ræða mestu hækkun á milli mánaða frá því í október 2007 þegar vísitalan hækkaði um tæp 10 stig á milli mánaða eða um tæp 3%.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs síðastliðin þrjú ár. Þar sést hvernig vísitalan hefur lækkað umtalsvert síðan í júlí 2008 þó vissulega hafi hún tekið sveig upp á við frá þeim tíma, t.d. í ágúst sl. Rétt er þó að hafa í huga að samkvæmt þessum tölum er íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu nú á svipuðum slóðum og það var í nóvember sl.

Á fyrstu mánuðum þessa árs, þ.e. fram að maí, hafði hins vegar verið lítil breyting á íbúðaverði eins og sjá má á myndinni. Eftir töluverða lækkun íbúðaverðs í nóvember og desember sl. virðist vorið ætla að ýta undir verðhækkun á íbúðaverði á höfuðborgarsvæðinu. Þannig hefur íbúðaverð hækkað um 1,8% frá upphafi þessa árs ef tekið er tillit til hækkunarinnar í maí.

Íbúðaverð hefur, þrátt fyrir hækkunina í maí, lækkað töluvert eða um 13,6% á föstu verðlagi, frá því í janúar 2008 þegar vísitalan náði hámarki (357,4 stigum).

Síðastliðna 3 mánuði hefur vísitala íbúðaverðs hækkað um 2,3%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún staðið í stað en lækkun síðastliðna 12 mánuði nemur 1%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.