Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 314,2 stig í apríl og lækkaði um 2,6% frá fyrra mánuði samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands (áður Fasteignamati ríkisins).

Annan mánuðinn í röð tekur íbúðaverð því dýfu, lækkar nú um 8,4 stig, en í síðasta mánuði lækkaði vísitalan um 12,9 stig eða 3,8% sem þá var mesta lækkun milli mánaða í yfir 15 ár eða frá því að byrjar var að reikna vísitölu íbúðaverðs.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs síðastliðin þrjú ár.

Þar sést hvernig íbúðaverð hefur lækkað nánast samfellt s.l. 15 mánuði en vísitala íbúðaverðs náði hámarki fyrir rúmu ári síðan, í janúar 2008, þegar hún mældist 357,4 stig og hefur vísitalan því lækkað um rúm 13,7% síðan þá.

Þá hefur íbúðaverð nú lækkað stanslaust frá því í júlí í fyrra en frá því í janúar 2008 hefur íbúðaverð aðeins hækkað tvisvar milli mánaða.

Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitala íbúðaverðs um 6,9%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún lækkað um 9,9% og lækkun síðastliðna 12 mánuði nemur 9,4%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.