Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu jókst lítillega á milli vikna í nýliðinni viku. Þannig nam veltan í vikunni 1.168 milljónum króna samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands, samanborið við 1.054 milljóna króna veltu í vikunni á undan og jókst því um 11% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta lækkar þó á milli vikna, fjórðu vikuna í röð, og nemur nú 1.158 milljónum króna, samanborið við 1.257 milljónir í vikunni á undan. Fjögurra vikna meðalvelta hefur nú lækkað um tæpar 300 milljónir króna á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta stendur í stað á milli ára en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 50% milli ára. Í byrjun apríl lækkaði fjögurra vikna meðalvelta í fyrsta sinn á milli ára síðan í byrjun nóvember sl.

Tólf vikna meðalvelta eykst þó á milli vikna eða um 20 milljónir króna, og nemur 1.376 milljónum króna.

Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði en hún er nú 1.428 milljónir króna á viku. Fyrir ári síðan nam 12 mánaða meðalveltan 1.593 milljónum króna og hefur því dregist saman um 10% á milli ára. Þá má geta þess að um miðjan janúar í fyrra fór 12 mánaða meðalvelta í fyrsta skipti undir 2 milljarða frá því febrúar 2003.

Í síðustu viku:

Alls var 40 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 44 samninga í vikunni á undan og þar á undan. Alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali á síðasta ári en 44 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning hækkar þó á milli vikna, eftir að hafa lækkað síðustu tvær vikur á undan, og nam í vikunni 29,2 milljónum króna, samanborið við 23,9 milljónum króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 34,6 milljónir króna en það sem af nemur þessu ári nemur meðalupphæðin 29,6  milljónum króna.