Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í mars 2013 var 425. Heildarvelta nam 15,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 36,4 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 10,1 milljarði, viðskipti með eignir í sérbýli 4,1 milljarði og viðskipti með aðrar eignir 1,3 milljörðum króna. Kemur þetta fram á vef Þjóðskrár.

Þegar mars 2013 er borinn saman við febrúar 2013 fækkar kaupsamningum um 1,4% og velta eykst um 11%. Í febrúar 2013 var þinglýst 431 kaupsamningi, velta nam 13,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 32,3 milljónir króna.

Þegar mars 2013 er borinn saman við mars 2012 fækkar kaupsamningum um 4,5% og velta eykst um 6,5%. Í mars 2012 var þinglýst 445 kaupsamningum, velta nam 14,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 32,6 milljónir króna.