Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum síðastliðin þriðjudag tillögu Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra um að Íbúðalánasjóði verði skipt upp. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Í því felst að sá hluti sem snýr að fjármálaumsýslu vegna eldra lánasafns sjóðsins verði skilinn frá meginstarfsemi hans. Legið hefur fyrir frá árinu 2012, þegar almennum lánveitingum sjóðsins til almennings vegna húsnæðiskaupa var að mestu hætt, að bregðast þyrfti við áhrifum þessa á Íbúðalánasjóð. Þeim var hætt í kjölfar úrskurðar Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um að lánin stönguðust á við reglur EES-samningsins. Starfshópur, sem skipaður var í september síðastliðnum, hefur verið með breytta stöðu sjóðsins til umfjöllunar og var niðurstaða hópsins að leggja til við ráðherra að fara þessa leið.

Hlutverk Íbúðalánasjóðs hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum með breytingum á lögum um húsnæðismál og er í dag sú stofnun sem fer með framkvæmd húsnæðismála hér á landi. Hún fer með stefnumótun og rannsóknir á húsnæðismarkaði, umsjón með opinberum húsnæðisstuðningi og veitingu félagslegra húsnæðislána. Eftir uppskiptinguna verður til öflug húsnæðisstofnun sem gegnir lykilhlutverki á húsnæðismarkaði, hún fer með framkvæmd og samhæfingu húsnæðismála um land allt, auk þess að vera öflugur samstarfsaðili fyrir sveitarfélögin í landinu í tengslum við áætlunargerð þeirra í húsnæðismálum.

Á sama fundi ríkisstjórnarinnar á þriðjudag kynnti Ásmundur Einar að til greina komi að sameina Mannvirkjastofnun við húsnæðisstofnunarhluta Íbúðalánasjóðs. Hyggst ráðherrann skipa starfshóp á næstu dögum sem skoði ítarlega kosti þess og galla.

Tillagan um sameiningu þessara stofnana kemur í kjölfar nýrrar verkaskiptingar innan stjórnarráðsins, en um síðustu áramót fluttust mannvirkja- og byggingarmál alfarið yfir til félagsmálaráðuneytisins. Ásmundur Einar sagði við það tilefni að mikilvægt væri að efla enn frekar stjórnsýslu á húsnæðis- og byggingamarkaði svo bregðast megi skjótar við aðstæðum á húsnæðismarkaði.