Stjörnöld ætla að færa Íbúðalánajsóð (ÍLS) beint udnir eftirlit Fjármálaeftirlitsins (FME) með ámóta hætti og aðrar fjármálastofnanir. Auk þess verða eiginfjárkvaðir og aðrar kröfur um fjárhagslegan styrk samræmda því sem gengur og gerist í fjármálakerfinu.

Fjallað er um málið í Morgunkorni Íslandsbanka. Segir að búast megi við umfangsmiklum breytingum á því regluverki sem ÍLS starfar undir.Fjallað er um breytingar á Íbúðalánasjóði í viljayfirlýsingu stjórnvalda til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins vegna 4. endurskoðunar á áætlun sjóðsins og stjórnvalda.

Í„ desember síðastliðnum samþykkti Alþingi að efla eiginfjárstöðu ÍLS um allt að 33 ma.kr. í því skyni að koma eiginfjárhlutfalli sjóðsins upp í þau 5% mörk sem því er ætlað að vera að lágmarki. Í samþykkt Alþingis, sem og í viljayfirlýsingu stjórnvalda til AGS, var gert ráð fyrir að þetta framlag lægi fyrir í desemberlok. Ekki virðist það þó vera frágengið enn, og er allt á huldu um með hvaða hætti þessi innspýting muni eiga sér stað. Þó má leiða að því líkur að henni verði mætt með frekari útgáfu á RIKH18-skuldabréfum líkt og lögð voru fram sem eiginfjárframlag ríkisins í nýju bankana og Byggðastofnun,“ segir í Morgunkorni.

ÍLS færður undir eftirlit FME

„AGS lýsir í umsögn sinni um 4. endurskoðun ánægju með skref sem færa regluverk ÍLS og eftirlit með sjóðnum til samræmis við önnur lánafyrirtæki, en tímaáætlun þar að lútandi á að liggja fyrir. Ekki verður hjá því komist að hugleiða hvort þessar breytingar standi í sambandi við vilja Seðlabankans og AGS til þess að styrkja umgjörð peningastefnunnar í kjölfar afnáms hafta, m.a. með auknum völdum Seðlabankans til þess að hafa áhrif á lánshlutföll og jafnvel vaxtakjör lánastofnana. Fyrirkomulag ÍLS hefur raunar lengi verið AGS nokkur þyrnir í auga, líkt og fleiri alþjóðastofnunum, enda fátítt að opinber húsnæðislánastofnun með ríkisábyrgð sé jafn umsvifamikil á lánamarkaði meðal iðnríkja og hér gerist.“