Íbúðalánasjóður auglýsti í liðinni viku fjölda eigna á Akranesi til sölu og er tilboðsfrestur í þær til 10. október næstkomandi. Alls voru auglýstar til sölu 22 fasteignir á Akranesi og á þeim lista má finna fjölbýlishús sem og smærri húseignir.

Flestar eru eignirnar í eldri hluta bæjarins og mikið af þeim í lélegu ásigkomulagi. Í frétt Skessuhorns kemur fram að salan sé liður í átaki Akraneskaupstaðar og Íbúðalánasjóðs til að styrkja eldri hluta bæjarins.