Íbúðalánasjóður hefur fengið tilboð í stóran hluta fasteigna sjóðsins sem hann hefur ákveðið að samþykkja.

Í bréfi sem Íbúðalánasjóður sendi Félagi fasteignasala segir að um sé að ræða stærsta söluverkefni Íbúðalánasjóðs að undanskilinni sölu Íbúðalánasjóðs á eignum sínum til Leigufélagsins Kletts ehf.

Eignirnar sem um ræðir eru dreifðar víða um landið en um er að ræða 154 eignir.