Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu, sem sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs, hækkaði um 0,8% milli apríl og maí og stóð í 647,8 stigum, samkvæmt nýjum tölum Þjóðskrár Íslands .

Þetta er mesta hækkun milli mánaða síðan í nóvember 2018 þegar íbúðaverð hækkaði um 1%, að því er segir í hagsjá Landsbakans . Verð á fjölbýli hækkaði um 0,9% en verð á sérbýli hækkaði um 0,6%. Vextir á íbúðalánum hafa lækkað að undanförnu sem kann að hafa aukið svigrúm fólks til íbúðakaupa.

Raunverð íbúða helst nokkuð óbreytt milli mánaða þar sem verð annarra vara en húsnæðis hækkaði með svipuðu móti, eða um 0,9%, milli apríl og maí samkvæmt vísitölu neysluverðs.

Sé litið til 12 mánaða breytingar á íbúðaverði hefur nafnverð nú hækkað um 3,8% og raunverð 1,2%. Breytingar á raunverði íbúða hafa verið afar hóflegar síðustu mánuði, sérstaklega ef litið er á samhengi þess við aðrar undirliggjandi stærðir sem stýra kaupgetu, svo sem kaupmátt launa.