Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 345,8 stig í september sl. og hækkaði um 0,7% á milli mánaða samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands.

Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur nú hækkað um 6% á milli ára en um 4% frá síðustu áramótum.

Á myndinni hér að neðan má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs síðastliðin fimm ár. Eins og sjá má mælist íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu nú á svipuðu róli og það var í lok árs 2008.Vísitalan náði hámarki í ársbyrjun 2008 en hefur nú síðan þá lækkað um 3,2% föstu verðlagi. Mest lækkaði hún um 15,5% að raunvirði frá hámarkinu en það var í desember 2009. Síðan þá hefur íbúðaverð hækkað um 14,5%.

Síðastliðna 3 mánuði hefur vísitala íbúðaverðs hækkað um 1,3% en síðastliðna 6 mánuði hefur hún hækkað um 2,9%.

© vb.is (vb.is)