Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 424,9 stig í mars 2015 (janúar 1994 = 100 stig) og hækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram í markaðsfréttum Þjóðskrár Íslands .

Síðastliðna þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um 3,2%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 5,9% og síðastliðna tólf mánuði hækkaði hún um 8,8%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.