Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 423,5 stig í febrúar 2015 og hækkaði um 1,8% frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram í markaðsfréttum Þjóðskrár Íslands .

Síðastliðna 3 mánuði hefur vísitalan hækkað um 4,9%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 5,7% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 10,8%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.