Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 329,5 stig í október sl. og hækkaði um 1% á milli mánaða samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands.

Vísitala íbúðaverðs hefur þannig hækkað alla mánuði á þessu ári að júlí undanskildum. Þannig hefur vísitalan hækkað um 8,1% frá áramótum en hækkunin á milli ára nemur 7,5%.

© vb.is (vb.is)

Á myndinni hér að ofan má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs síðastliðin þrjú ár. Eins og sjá má hefur vísitalan lækkað nokkuð frá miðju ári 2008 en frá því að íbúðaverð náði hámarki í janúar 2008 hefur vísitala íbúðaverðs lækkað um 7,8% á föstu verðlagi. Mest lækkaði hún um 15,5% að raunvirði frá hámarkinu í janúar 2008 en það var í desember 2009. Frá byrjun árs 2010 hefur vísitala íbúðaverðs þó hækkað um 8,6%.

Síðastliðna 3 mánuði hefur vísitala íbúðaverðs hækkað um 2,7% en síðastliðna 6 mánuði hefur hún hækkað um 5,8%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.