Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 416,1 stig í janúar 2015 og hækkaði um 1% frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram í markaðsfréttum Þjóðskrár Íslands .

Síðustu þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um 3,7%, síðastliðna sex mánuði hefur hún hækkað um 6,5% og síðustu tólf mánuði hefur hún hækkað um 10,4%.