Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 344,3 stig í júlí sl. og hækkaði um 0,9% á milli mánaða samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands.

Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur nú hækkað um 7,2% á milli ára og 3,5% frá áramótum.

Á myndinni hér að neðan má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs síðastliðin fimm ár. Eins og sjá má mælist íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu nú á svipuðu róli og það var í lok árs 2008, rétt eftir hrun. Vísitalan náði hámarki í ársbyrjun 2008 en hefur nú síðan þá lækkað um 3,7% föstu verðlagi. Mest lækkaði hún um 15,5% að raunvirði frá hámarkinu en það var í desember 2009. Síðan þá hefur íbúðaverð hækkað um 14%. Til gaman má geta þess að íbúaverð hefur nú aðeins lækkað um 1,3% á föstu verðlagi frá október 2008, mánuðinn sem íslenska bankakerfið hrundi.

Síðastliðna 3 mánuði hefur vísitala íbúðaverðs hækkað um 2,7% en síðastliðna 6 mánuði hefur hún hækkað um 3,4%.

© vb.is (vb.is)