Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 319,6 stig í maí sl. og hækkaði um 2,7% á milli mánaða samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands.

Þetta er mesta hækkun á milli mánaða síðan í október 2007 en vísitala íbúðavers hefur nú hækkað fimm mánuði í röð og um 3,5% á milli ára. Þá hefur það jafnframt ekki gerst síðan í október 2007 að vísitalan hafi hækkað fimm mánuði í röð.

© vb.is (vb.is)

Á myndinni hér að ofan má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs síðastliðin þrjú ár. Eins og sjá má hefur vísitalan lækkað nokkuð frá miðju ári 2008 en frá því að íbúðaverð náði hámarki í janúar 2008 hefur vísitala íbúðaverðs lækkað um 10,6% á föstu verðlagi. Vísitala íbúðaverðs hefur þó ekki mælst jafn há og nú síðan í mars 2009.

Síðastliðna 3 mánuði hefur vísitala íbúðaverðs hækkað um 3,7% en síðastliðna 6 mánuði hefur hún hækkað um 4,3%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.