Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 341,3 stig í júní sl. og hækkaði um 1,5% á milli mánaða samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands.

Þetta er mesta hækkun á milli mánaða frá því í maí 2011 en íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur nú hækkað um 6,3% á milli ára.

Á myndinni hér að neðan má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs síðastliðin fimm ár. Eins og sjá má mælist íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu nú á svipuðu róli og það var í byrjun árs 2009. Vísitalan náði hámarki í ársbyrjun 2008 en hefur nú síðan þá lækkað um 4,5% föstu verðlagi. Mest lækkaði hún um 15,5% að raunvirði frá hámarkinu en það var í desember 2009. Síðan þá hefur íbúðaverð hækkað um 13%.

Síðastliðna 3 mánuði hefur vísitala íbúðaverðs hækkað um 1,5% en síðastliðna 6 mánuði hefur hún hækkað um 2,6%.

© vb.is (vb.is)