Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 336,2 stig í mars sl. og hækkaði um 1,2% á milli mánaða samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands.

Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað nær látlaust sl. 15 mánuði og hefur nú hækkað um 8,7% á milli ára.

Á myndinni hér að neðan má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs síðastliðin þrjú ár. Eins og sjá má hefur vísitalan lækkað nokkuð frá lok árs 2008 en frá því að íbúðaverð náði hámarki í janúar 2008 hefur vísitala íbúðaverðs lækkað um 5,9% á föstu verðlagi. Mest lækkaði hún um 15,5% að raunvirði frá hámarkinu í janúar 2008 en það var í desember 2009. Síðan þá hefur íbúðaverð hækkað um 11,3% en frá byrjun árs 2010 hefur vísitala hækkað um 10,8%.

Síðastliðna 3 mánuði hefur vísitala íbúðaverðs hækkað um 1,1% en síðastliðna 6 mánuði hefur hún hækkað um 3,1%. Þá hefur íbúðaverð hækkað um 1% frá síðustu áramótum.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.