Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 343,5 stig í ágúst sl. og lækkaði um 0,2% á milli mánaða samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands.

Þetta er í fyrsta sinn í fjóra mánuði sem vísitalan lækkar en íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur þó hækkað um 6,7% á milli ára og um 3,3% frá síðustu áramótum.

Á myndinni hér að neðan má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs síðastliðin fimm ár. Eins og sjá má mælist íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu nú á svipuðu róli og það var í lok árs 2008. Vísitalan náði hámarki í ársbyrjun 2008 en hefur nú síðan þá lækkað um 3,9% föstu verðlagi. Mest lækkaði hún um 15,5% að raunvirði frá hámarkinu en það var í desember 2009. Síðan þá hefur íbúðaverð hækkað um 13,7%.

Síðastliðna 3 mánuði hefur vísitala íbúðaverðs hækkað um 2,1% en síðastliðna 6 mánuði hefur hún hækkað um 3,4%.

© vb.is (vb.is)