Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 308,1 stig í febrúar sl. og hækkaði um 1% á milli mánaða samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands.

Vísitalan hefur þá hækkað í tvo mánuði í röð.

Á myndinni hér að ofan má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs síðastliðin þrjú ár. Eins og sjá má hefur vísitala sveiflast nokkuð síðastliðið ár. Einnig sést hvernig vísitalan hefur lækkað umtalsvert síðan í janúar 2008 þó vissulega hafi hún tekið sveig upp á við frá þeim tíma, t.d. í ágúst í fyrra og sl. vor.  Íbúðaverð hefur nú hækkað um 2% á milli ára.

Þannig hefur íbúðaverð lækkað um 13,8% á föstu verðlagi síðan í janúar 2008 þegar vísitalan náði hámarki (357,4 stigum).

Síðastliðna 3 mánuði hefur vísitala íbúðaverðs hækkað um 0,6% og síðastliðna 6 mánuði hefur hún hækkað um 1,8%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.