Íbúðum hér á landi fjölgaði um 1.759 í fyrra. Til samanburðar fjölgaði þeim um 1.580 árið 2016 og er aukningin því einungis tæplega 200 íbúðir milli ára. Þetta má sjá í nýjum tölum sem Þjóðskrá Íslands hefur birt segir í fréttatilkynningu frá Íbúðalánasjóði sem segir fjölgunina hægfara í samanburði við eftirspurn.

Sigrún Ásta Magnúsdóttir, deildarstjóri á húsnæðissviði Íbúðalánasjóðs segir þessar tölur vera áhyggjuefni. „Séu þær bornar saman við nýja greiningu hagdeildar Íbúðalánasjóðs um þörf á íbúðarhúsnæði kemur í ljós að líklega verður enn mikill skortur á íbúðum næstu 2-3 árin,“ segir Sigrún Ásta en fjölgun íbúða í fyrra var enn undir meðaltali síðustu tveggja áratuga.

Fjölgun íbúða eftir sveitarfélögum
Fjölgun íbúða eftir sveitarfélögum
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Íbúðum er því enn að fjölga mun hægar en þörf er á, og uppsafnaður skortur er enn til staðar eftir hæga fjölgun íbúða undanfarin 8 ár segir í tilkynningu Íbúðalánasjóðs. Sé fjölgun íbúða í fyrra skoðuð eftir sveitarfélögum kemur í ljós að íbúðum fjölgaði mest í Mosfellsbæ, eða um 401 íbúð. Næst kemur Reykjavík, þar sem íbúðum fjölgaði um 322 í fyrra samkvæmt tölum Þjóðskrár.

Til samanburðar fjölgaði íbúðum í borginni um 635 árið 2016. Kópavogur er í þriðja sæti í fjölgun íbúða í fyrra, en íbúðum í bænum fjölgaði um 269 í fyrra borið saman við 168 árið 2016. Í nýlegri skýrslu Íbúðalánasjóðs kemur fram að íbúðum þyrfti að fjölga um samtals 17.000 árin 2017-2019 til að mæta að fullu þörf og uppsöfnuðum skorti.

Nú þegar liggur fyrir að íbúðum fjölgaði um tæplega 1.800 í fyrra má draga þá ályktun, sé tekið mið af niðurstöðum skýrslunnar, að íbúðum þyrfti að fjölga um um það bil 15.000 í ár og næsta ár, 2018 og 2019, til að mæta að fullu þörf og uppsöfnuðum skorti. Eins og áður hefur komið fram er afar ólíklegt að uppbyggingarhraðinn verði nægjanlegur næstu tvö árin til að það náist að mæta þörf almennings fyrir íbúðir.

Segir Sigrún Ásta tölurnar sýna hversu mikilvægt það er að sveitarfélög marki stefnu í húsnæðismálum og geri áætlanir um hvernig þau ætla að mæta þeim mikla skorti sem ríkir á húsnæðismarkaði. „Húsnæðisáætlanir sveitarfélaga eru lykilþáttur í því að stuðla að stöðugleika og sjá til þess að framboð húsnæðis mæti eftirspurn.“

Árleg fjölgun íbúða
Árleg fjölgun íbúða
© Aðsend mynd (AÐSEND)