Fólksfjölgun varð í Sveitarfélaginu Árborg milli áranna 2003 og 2004. Árið 2003 voru alls 6.326 íbúar en árið 2004 voru þeir 6.522, íbúum hefur því fjölgað um 196 milli áranna. Karlar voru 3.318 en konur 3.204.

Skiptingin er þannig að á Selfossi búa 5.068 íbúar en á Eyrarbakka 577, Stokkseyri 507 og í Árborg dreifbýli eru 174 íbúar.