Íbúum landsins hefur fjölgað um 5.127 manns eða 1,4% á tímabilinu frá 1. desember 2018 til 1. september sl.. Samtals voru 361.798 einstaklingar skráðir með búsetu hér á landi samkvæmt skráningu Þjóðskrár í upphafi þessa mánaðar.

Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 1.630 sem er hlutfallsleg fjölgun upp á 1,3% á ofangreindu tímabili. Þau sveitarfélög sem næst komu voru Kópavogur með 604 íbúa eða 1,6% fjölgun og Reykjanesbær með 446 íbúa eða 2,4% fjölgun.

Þetta kemur fram í nýjum tölum á vef Þjóðskrár Íslands sem byggja á skráningu einstaklinga í sveitarfélög samkvæmt skráningu Þjóðskrár.

Hlutfallslega fjölgaði íbúum Borgarfjarðarhrepps mest eða um 9,2% og fór íbúatalan úr 109 í 119 á tímabilinu. Mest fækkaði íbúum hlutfallslega í Langanesbyggð, um 5,5% og næst mest í Hvalfjarðarsveit um 5,1%. Um fækkun var að ræða í 16 af 72 sveitarfélögum landsins.

Lítilsháttar fjölgun hefur orðið í öllum landshlutum síðastliðna níu mánuði að Vestfjörðum undanskildum þar sem fækkar um 7 einstaklinga. Hlutfallslega fjölgaði mest á suðurlandi eða um 788 sem jafngildir 2,7% fjölgun. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 3.380 eða 1,5% og íbúum á Suðurnesjum fjölgaði um 601 eða um 2,2%.