Meirihlutaeigendur fiskeldisfyrirtækjanna Ice Fish Farm og Laxa fiskeldi skrifuðu undir samkomulag um sameiningu félaganna eftir lokun markaða í gær. ICE Fish Farm mun kaupa öll hlutabréf í Löxum og borga fyrir með hlutabréfum í ICE Fish Farm í kjölfar samþykkis aðalfunda félaganna.

„Sameinað félag verður eitt öflugasta fiskeldisfyrirtæki landsins, með starfsemi í fjórum sveitarfélögum,“ segir í fréttatilkynningu.

Fyrirtækin tvö eru í meirihlutaeigu norska fyrirtækisins Måsøval Eiendom. Ice Fish Farm var skráð á norska hlutabréfamarkaðinn sumarið 2020 og undir lok síðasta árs var greint frá því að Måsøval hygðist kaupa 55,6% hlut í fyrirtækinu. Måsøval Eiendom fór með með 59% hlut í Löxum fiskeldi í árslok 2020, samkvæmt síðasta ársreikningi.

Seiðaframleiðsla nýs félags mun samanstanda af þremur seiðaeldisstöðvum í Ölfusi ásamt 50% eignarhlut í seiðastöðinni Ísþór og tveimur seiðaeldisstöðvum í Norðurþingi, á Rifósi og Kópaskeri.

Sjóeldi félagsins verður í þremur fjörðum; Berufirði, Fáskrúðsfirði og Reyðarfirði en í ferli eru umsóknir um leyfi í Stöðvarfirði og Seyðisfirði. Sameinað félag á 67% hlutafjár í Búlandstindi ehf og sameiginlegur fjöldi starfsmanna er um 200.

Sameinað félag er með 36.800 tonn í samanlögðum leyfum og þar af eru 2.300 tonn fyrir ófrjóan fisk. Í umsókn eru leyfi uppá viðbótar 17.000 tonn.

Fyrirtækin verða um sinn rekin í sitthvoru lagi en stjórnendateymi félaganna munu strax fara í að vinna að sameiginlegri uppbygginu og framtíðarsýn. Guðmundur Gíslason er framkvæmdastjóri Ice fish farm og Jens Garðar Helgason er framkvæmdastjóri Laxa.