Á hluthafafundi Icebank hf. sem haldinn var fyrr í dag var ákveðið að breyta nafni bankans í Sparisjóðabanki Íslands hf.

Einnig var ný stjórn var kosin og voru eftirtaldir aðilar kosnir í bankaráð bankans:

Geirmundur Kristinsson (formaður stjórnar), Steinþór Jónsson, Óskar Ólafur Elísson, Ásgeir Sólbergsson og Bernhard Þór Bernhardsson (varaformaður stjórnar).

Í varastjórn voru eftirtaldir aðilar kjörnir:

Árni Harðarson, Einar Þór Sverrisson, Geir Gestsson, Gestur Jónsson og Hulda Dóra Styrmisdóttir.