Íslenska orkufyrirtækið Iceland Energy Group hyggst byggja og reka tvær vatnsaflsvirkjanir í Serbneska lýðveldinu í Bosníu Hersegóvínu (Republika Srpska). Bjarni Einarsson, stjórnarformaður Iceland Energy Group (IEG) og Rajko Ubiparip, orkumálaráðherra lýðveldisins undirrituðu viljayfirlýsingu þess efnis í Banja Luka í Bosníu Hersegóvínu 24. janúar síðastliðinn. Heildarkostnaður við framkvæmdirnar er áætlaður um 600 milljónir evra eða um 55 milljarðar íslenskra króna.

Í tilkynningu vegna viljayfirlýsingar um byggingu og rekstur virkjanna segir að um sé að ræða 450 og 55 megavatta virkjanir í ánni Drina við landamæri Bosníu Hersegóvínu og Serbíu. Heildarraforkukerfi Serbneska lýðveldisins er nú um 2000 megavött. Þær virkjanir sem um ræðir munu því stækka raforkukerfi landsins um fjórðung. Til samanburðar má geta þess að Kárahnjúkavirkjun er 690 megavött.

Árni Jensen, forstjóri Iceland Energy Group, segir í tilkynningunni að um mjög spennandi verkefni sé að ræða. “Það er viðvarandi orkuskortur á öllum Balkanskaganum enda á sér þar nú stað mikil efnahagsleg uppbygging. Á svæðinu eru mikil tækifæri til að nýta sérfræðiþekkingu okkar Íslendinga á virkjun umhverfisvænnar orku. Við horfum líka til þess að á þessu ári opnar útboðsmarkaður á raforku í Evrópu sem gerir framleiðendum á raforku færi á að selja orku hvar sem er í Vestur- og Mið Evrópu.”

Gert er ráð fyrir að virkjanirnar verði að 51% í eigu IEG og 49% verði í sameiginlegri eigu Serbneska lýðveldisins og Serbíu. Fjármögnun verkefnisins er komin vel á veg. Á næstu sex mánuðum er stefnt að því að ljúka samningum um framkvæmdirnar og reiknað er með að þær hefjist í ársbyrjun 2009.

Iceland Energy Group er íslenskt orkufyrirtæki sem hefur það að markmiði að fjárfesta í vatns- og gufuaflsvirkjunum í Suðaustur-Evrópu. Eigendur og stór hópur samstarfsaðila fyrirtækisins búa yfir sérþekkingu á skipulagningu, hönnun, byggingu og rekstri virkjana hér á landi og erlendis. Félagið hefur verið starfrækt í fjögur ár og er með fjölmörg önnur verkefni til skoðunar í Suðaustur Evrópu. Félagið er í eigu Bjarna Einarssonar, Árna Jensens og hóps íslenskra fagfjárfesta.