Iceland Express mun hefja áætlunarflug til Bandaríkjanna á nýjan leik næsta sumar. Flogið verður daglega til Boston í Massachusetts frá byrjun júní eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá félaginu. Iceland Express flaug áður til Bandaríkjanna árin 2010 og 2011.

Þá kemur fram að áfangastöðum í Evrópu verður fækkað um sex en um leið verður tíðni aukin á þá staði sem flogið verður á miðað við það sem áður var. Nýir áfangastaðir í Evrópu verða Osló í Noregi og Frankfurt-Main í Þýskalandi.

„Iceland Express kemur nú aftur inn á ameríkumarkaðinn þar sem einokun hefur ríkt lengst af. Með samkeppni mun verð lækka til hagsbóta fyrir farþega,“ segir Skarphéðinn Berg Steinarsson forstjóri Iceland Express, í tilkynningunni.

„Auk flugs vestur um haf og aukinni tíðni á flesta áfangastaði okkar í Evrópu erum við að auka sætaframboðið úr 370 þúsund sætum í 480 þúsund sæti eða um 30%,“ segir.

London og Kaupmannahöfn hafa allt frá stofnun félagsins verið megináfangastaðir Iceland Express og verður svo áfram. Flogið verður daglega til þessara staða og suma dagana tvisvar. Auk fyrrgreindra staða verður flogið til Parísar, Berlínar, Barcelona, Alicante og Varsjár.

Holidays Czech Airlines mun halda áfram að þjóna Iceland Express.