Iceland Express ætlar að hefja flug til Gdansk í Póllandi næsta sumar.  Flogið verður  einu sinni í viku frá og með júníbyrjun, á föstudögum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Iceland Express en Gdansk er annar áfangastaða félagsins í Póllandi en flogið er vikulega allan ársins hring til Varsjár.

Hafnarborgin Gdansk er í norðurhluta Póllands og eru íbúar borgarinnar um fimm hundruð þúsund talsins.

Frægasti sonur borgarinnar er líklega Lech Walesa, sem síðar varð forseti Póllands, en hann stofnaði samvinnuhreyfingu sína í einni af mörgum skipasmíðastöðvum borgarinnar.