Iceland Express var í gær valið þriðja besta lággjaldaflugfélagið sem flýgur til Danmerkur. Sjö lággjaldaflugfélög fljúga til Danmerkur.

Haft er eftir Heimi Má Péturssyni, upplýsingafulltrúa Iceland Express, í tilkynningu að þetta sýni þann árangur sem ný yfirstjórn Iceland Express hafi náð við endurskipulagningu félagsins. Hann bendir jafnframt á að flugfélagið hafi í sumar verið stundvísasta íslenska félagið á Keflavíkurflugvelli með allt að 100% stundvísi samkvæmt hálfsmánaða mælingum ferðavefsins Túrista.