Iceland Express ætlar að hefja áætlunarflug til Glasgow og Stokkhólms næsta sumar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Iceland Express í dag en fyrirhugað er að fljúga þaðan og frá fleiri borgum í Evrópu og á Norðurlöndunum til Bandaríkjanna með viðkomu á Íslandi á leiðinni vestur um haf, eftir því sem fram kemur í tilkynningunni.

Eins og kunnugt er hefur félagið þegar ákveðið að fljúga til New York allan ársins hring, auk þess sem flogið verður til Boston og Chicago næsta sumar.