Iceland Express stendur í dag fyrir rýmingarsölu á flugmiðum til fjögurra vinsælustu áfangastaða sinna.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Iceland Express en þar kemur fram að vegna efnahagsástandsins hafi félagið ákveðið að efna til rýmingarsölu á 5000 flugsætum í janúar og febrúar.
Um er að ræða 5000 flugsæti og ferðatímabilið er frá 16. Janúar til 28. Febrúar en útsalan stendur yfir í 12 klukkustundir, frá kl. 12 á hádegi til miðnættis.
Fargjaldið verður að sögn félagsins mjög lágt. Frá 1.270 kr. hvora leið (6.995 kr. með sköttum og gjöldum). Flugleiðirnar sem í boði eru, eru á milli Keflavíkur og Lundúna, Kaupmannahafnar, Varsjár og Berlínar.
„Reynslan sýnir að það myndast mikið kapphlaup, strax og opnað er fyrir söluna, þegar fólk reynir að tryggja sér ódýru sætin á þeim dagsetningum sem það vill ferðast,“ segir í tilkynningunni.
„Fólk er hvatt til að sýna þolinmæði ef bókunarvefurinn er hægur. Búið er að auka við sérstaklega við bandvíddina, til að tryggja að vefþjónar félagsins þoli álagið.“