Iceland Express og Flexible Flights, sem er hluti af TUI- sérferðasamsteypunni, hafa skrifað undir samstarfssamning sem er fyrsti samningur sinnar tegundar sem samsteypan gerir við íslenskt félag í flugstarfsemi. Samningurinn gefur breskum ferðamönnum tækifæri til að bóka ferðir til Íslands í gegnum öruggar gáttir ferðasöluaðila sem heyra undir TUI og Flexible Flights, sem njóta mikils trausts á Bretlandseyjum.

Fram kemur í tilkynningu frá Iceland Express að TUI er eitt af stærstu og leiðandi fyrirtækjum heims í sölu farmiða og dótturfélagið Flexible Flights er í samstarfi við mörg helstu flugfélög í heiminum og býður upp á þjónustu á góðu verði. Fyrirtækið selur farmiða beint til farþega, aðallega í gegnum yfir 700 söluskrifstofur Thomson ferðaskrifstofunnar. Þetta samstarf við Iceland Express mun án efa auka kynningu á Íslandi verulega og stuðla að fjölgun ferðamanna hingað frá Bretlandi.

Á næstu vikum munu Flexible Flights og Iceland Express fara í söluherferð hjá ferðaskrifstofum í Bretlandi með það sérstaklega að markmiði að fjölga ferðamönnum í helgarferðum yfir veturinn. Samkvæmt samningnum eru um eða yfir 700 ferðaskrifstofur komnar með beinan aðgang að bókunarkerfi Iceland Express í gegnum Amadeus.