Fyrirtækið Iceland Global Water ehf hefur sótt um 3.000 fermetra  lóð í Helguvík fyrir vatnstanka. Yrðu þeir staðsettir miðsvæðis í nánd við væntanlegan nýjan viðlegukant í vesturhluta hafnarinnar.

Atvinnu- og hafnarráð Reykjanesbæjar hefur móttekið formlegt erindi þessa efnis frá fyrirtækinu en óskar er eftir nánari upplýsingum um fyrirhugaða starfsemi á báðum lóðunum og m.a. hvernig vatnsöflun verði háttað.

Iceland Global Water hyggst nýta aðstöðuna fyrir vatnsútflutning til Kanada en vatninu yrði dælt úr tönkunum í þar til gerð tankskip.

Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta.