Jóhannes Jónsson opnaði verslun undir merkjum Iceland á Fiskislóð í gær. Fyrir er Iceland með verslun í Kópavogi.
Ljósmynd: Haraldur Guðjónsson
Deila
Í gær var opnuð ný verslun Iceland á Fiskislóð 3. Iceland er í eigu Jóhannesar Jónssonar en hann opnaði fyrstu búð sína undir merki Iceland í Engjahjalla nú í sumar.
Fjöldi fólks lagði leið sína í verslunina við opnun og var ekki annað að sjá en fólki litist vel á það sem fyrir augu bar. Ljósmyndari Viðskiptablaðsins, Haraldur Guðjónsson, leit við í hinni nýju verslun í gær.