Á næstu dögum mun ný Iceland verslun opna í Glæsibæ þar sem áður var 10-11 verslun. Um er að ræða fyrstu breytinguna af nokkrum sem eru fyrirhugaðar hjá Basko ehf., eignarhaldsfélagi 10-11 og Iceland, en á næstu mánuðum eru fyrirhugaðar samskonar breytingar á fleiri verslunum 10-11. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Fyrsta Iceland verslunin var opnuð í Engihjalla árið 2012 og í dag eru verslanir Iceland þrjár talsins og staðsettar í Engihjalla, Arnarbakka og í Vesturbergi. Árni Pétur Jónsson, forstjóri og hluthafi í Basko segir við tilefnið: „Breytingin er liður í því að útvíkka og stækka vörumerkið Iceland enda hafa verslanirnar fengið mjög góðar viðtökur í sínum hverfum. Fólk vill versla í sínu nærumhverfi og með breytingunni getur það í ríkari mæli gert sín innkaup þegar því hentar og nálægt heimilinu, enda Iceland þekkt fyrir gott vöruúrval, langan opnunartíma og hagstæð verð.“.